Skipan í listasafnsráð

Málsnúmer 2018060489

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 255. fundur - 25.06.2018

Lögð fram tillaga safnstjóra Listasafns Akureyrar um skipan þriggja manna listasafnsráðs samkvæmt 6. grein samþykktar um Listasafn Akureyrar. Hlutverk listasafnsráðs er að vera ráðgefandi um fagleg málefni safnsins s.s. listræna starfsemi, sýningaráætlanir, safna- og sýningarstefnu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögu safnstjóra og því munu þau Aðalsteinn Þórsson myndlistarmaður, Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi og Rósa Kristín Júlíusdóttir myndlistarkona skipa listasafnsráð næstu fjögur ár.