Frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), 178. mál

Málsnúmer 2018030093

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3591. fundur - 15.03.2018

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 6. mars 2018 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), 178. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0252.html