#metoo - umræða innan íþróttahreyfingarinnar

Málsnúmer 2018010428

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 23. fundur - 01.02.2018

Til umræðu viðbrögð og aðgerðir vegna #metoo umræðunnar innan íþróttahreyfingarinnar.

Formaður ráðsins greindi frá fundi sem hann hélt með forsvarsmönnum ÍBA og stærstu íþróttafélögum á Akureyri þar sem farið var yfir #metoo umræðuna tengt íþróttahreyfingunni.
Frístundaráð lýsir yfir ánægju með þá yfirlýsingu sem ÍSÍ sendi frá sér þann 12. janúar sl. vegna #metoo umræðunnar og með bréf sem sent var til íþróttahreyfingarinnar þann 31. janúar þar sem farið er yfir viðbrögð íþróttahreyfingarinnar.

Ráðið ítrekar mikilvægi þess að vinna hratt og örugglega að útfærslum á aðgerðum og skorar á ÍSÍ að skila af sér þeirri vinnu sem fyrst.



Frístundaráð hvetur ÍBA til að fylgja málinu fast eftir og lýsir sig einnig tilbúið til að veita íþróttahreyfingunni á Akureyri stuðning til að auka við fræðslu á meðal þjálfara og forystumanna íþróttahreyfingarinnar í þeirri viðleitni að koma í veg fyrir kynferðislega og kynbunda áreitni, ofbeldi og einelti.



Frístundaráð áskilur sér einnig rétt í komandi viðræðum á árinu 2018 um endurnýjun rekstarsamninga íþróttafélaga að skilyrða fjárveitingar til þeirra gegn því að félögin setji sér siðareglur, viðbragðsáætlanir og komi á markvissri fræðslu um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi. Einnig hvetur frístundaráð ÍBA til að koma á fót óháðu fagráði sem taki á móti ábendingum og kvörtunum iðkenda.

Með vísan til jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar vill frístundaráð jafnframt hnykkja á því að stjórnendur í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi bera sérstaka ábyrgð á því að allt starf sé skipulagt með jafnrétti að leiðarljósi og þegar samningar verða endurnýjaðir verða sett inn ákvæði sem setja skyldur á félögin að hafa skýra og virka jafnréttis- og aðgerðaráætlun.