Lundargata 17 - fyrirspurn vegna íbúðarhúsnæðis

Málsnúmer 2018010369

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 664. fundur - 01.02.2018

Erindi dagsett 26. janúar 2018 þar sem Petar Hristov Slavkov leggur inn fyrirspurn hvort leyfi fáist til að útbúa íbúðarhúsnæði í skúr á lóð nr. 17 við Lundargötu.
Í gildandi deiliskipulagi er gert réð fyrir parhúsi og bílgeymslu á lóðinni og að núverandi byggingar verði fjarlægðar. Núverandi skúr er ekki innan byggingarreits í deiliskipulagi. Skúrinn uppfyllir engar kröfur til íbúðarhúsnæðis í gildandi byggingarreglugerð og þyrfti því algerrar endurnýjunar við. Byggingarfulltrúi telur að uppbygging á lóðinni eigi að vera í samræmi við gildandi deiliskipulag og hafnar því endurnýjun núverandi skúrs til íbúðar.