Drög að reglugerðum á sviði félagsmála til umsagnar 2018

Málsnúmer 2017110287

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1281. fundur - 08.08.2018

Lögð fram drög að sjö reglugerðum varðandi félagsmál sem eru til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda á island.is ásamt drögum að umsögnum um þær. Frestur til að skila umsögnum er á bilinu frá 13. ágúst til 20. ágúst nk.

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs, Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri stoðþjónustu, Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð felur sviðsstjórum að gera athugasemdir f.h Akureyrarbæjar.