Sjávargata 4, mhl.08 - umsókn um byggingarleyfi vegna tæknirýma á þaki

Málsnúmer 2017110205

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 655. fundur - 23.11.2017

Erindi dagsett 17. nóvember 2017 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Bústólpa ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkunum á tæknirýmum á þaki á húsi nr. 4 við Sjávargötu, matshluta 08. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 656. fundur - 30.11.2017

Erindi dagsett 17. nóvember 2017 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Bústólpa ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkunum á tæknirýmum á þaki á húsi nr. 4 við Sjávargötu, matshluta 08 ásamt byggingu sílóa, matshluta 12. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomnar nýjar teikningar 29. nóvember 2017.
Stangengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.