Ágóðahlutagreiðsla 2017 - Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands

Málsnúmer 2017100501

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3575. fundur - 09.11.2017

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 30. október 2017 frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands þar sem tilkynnt er um greiðslu ágóðahluta til aðildarsveitarfélaga. Greiðsla ágóðahlutar fyrir árið 2017 fór fram 31. október sl. og er hlutur Akureyrarbæjar kr. 5.661.000.