Ályktun um stöðu barna frá samráðsnefnd félags stjórnenda leikskóla

Málsnúmer 2017100472

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 19. fundur - 31.10.2017

Jónína Hauksdóttir leikskólastjóri á Naustatjörn og Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri á Lundarseli sem eru fulltrúar í samráðsnefnd stjórnenda leikskóla FSL fóru yfir ályktunina.
Fræðsluráð þakkar þeim fyrir kynninguna og tekur undir ábendingar þeirra um mikilvægi þess að horfa til fjölda barna í rýmum og lengd vistunartíma barna á leikskólum.

Fræðsluráð vill horfa m.a. til þessara þátta við gerð nýrrar skólastefnu.