Umsókn um styrk til kaupa á augnstýribúnaði fyrir fjölfatlaða nemendur

Málsnúmer 2017100448

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 19. fundur - 31.10.2017

Erindi frá Jóni Baldvin Hannessyni skólastjóra Giljaskóla og Ragnheiði Júlíusdóttur deildarstjóra og þroskaþjálfa í sérdeild Giljaskóla þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á sérstökum augnstýribúnaði fyrir fjölfatlaða nemendur.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og felur fræðslustjóra að vinna málið áfram í samráði við skólastjóra og deildarstjóra sérdeildar Giljaskóla.