Fyrirspurn vegna hvíldarinnlagnar

Málsnúmer 2017100200

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1263. fundur - 18.10.2017

Lagt fram bréf dagsett 6. október 2017 frá Sjúkratryggingum Íslands þar sem leitað er upplýsinga um hvernig staðið er að framkvæmd þjálfunar einstaklinga sem koma til hvíldarinnlagna á Öldrunarheimili Akureyrar.

Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lagði fram svarbréf sitt og stutta samantekt sem send var til Sjúkratrygginga Íslands.