Mýrarvegur, Kaupangur - byggingarleyfi fyrir ísbúð

Málsnúmer 2017090089

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 647. fundur - 21.09.2017

Erindi dagsett 14. september 2017 þar sem Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir fyrir hönd Garbó ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum vegna flutnings Ísbúðarinnar milli bila. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 21. september 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 654. fundur - 16.11.2017

Erindi dagsett 15. nóvember 2017 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd Garbó ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af Mýrarvegi/Kaupangi, eign 0115. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 16. nóvember 2017 og samþykki meðeigenda sameignar í Y2.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið. Við lokaúttekt skal liggja fyrir endurskoðuð eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið.