Beiðni um aðgang að upplýsingum hjá Akureyrarbæ - verklagsreglur og önnur gögn sem varða úthlutun á Hlíð þegar óskað er eftir dýralausu rými

Málsnúmer 2017080088

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1263. fundur - 18.10.2017

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 10. ágúst 2017 frá Valgerði Guðmundsdóttur hdl. f.h. ættingja fyrrverandi íbúa á Öldrunarheimilum Akureyrar þar sem óskað er upplýsinga um verklagsreglur og önnur gögn er varða úthlutun á Hlíð þegar óskað er eftir dýralausu rými.

Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar lagði fram og kynnti svarbréf Öldrunarheimila Akureyrar og upplýsingagjöf við beiðninni og einnig lokabréf lögmannsins að fengnu svari ÖA.