Norðurgata 48 - fyrirspurn vegna viðbyggingar/sólstofu

Málsnúmer 2017070072

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 640. fundur - 21.07.2017

Erindi dagsett 17. júlí 2017 þar sem Malee Vita leggur inn fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við hús nr. 48 við Norðurgötu. Meðfylgjandi er mynd og samþykki nágranna.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar erindinu og óskar eftir umsókn um byggingarleyfi með nánari tillöguteikningum þar sem fram kemur útlit, grunnmynd hússins og afstaða til næstu húsa. Umsóknin verður þá lögð fyrir skipulagsráð.