Byggðavegur 143 - umsókn um úrtöku fyrir bílastæði

Málsnúmer 2017070055

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 641. fundur - 01.08.2017

Erindi dagsett 5. júlí 2017 þar sem Gunnar Harðarson og Hrafnhildur Jónsdóttir sækja um að tekið verði úr kantsteini við hús þeirra nr. 143 við Byggðaveg, fyrir bílastæði. Meðfylgjandi er teikning.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.