Gleráreyrar 1 - umsókn um sameiningu rýma 09-10

Málsnúmer 2017060046

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 635. fundur - 15.06.2017

Erindi dagsett 7. júní 2017 þar sem Egill Guðmundsson fyrir hönd Bravo ehf. sækir um byggingarleyfi til að sameina rými 09 og 10 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Egil Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.