Hamarstígur 34 - umsókn um bílastæði á lóð

Málsnúmer 2017050106

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 631. fundur - 18.05.2017

Erindi dagsett 16. maí 2017 þar sem Sigríður Elsa Kristjánsdóttir sækir um leyfi til að gera bílastæði á lóð sinni við hús nr. 34 við Hamarstíg. Bílastæðið skal vera vestan megin við húsið og ekið inn frá Engimýri, sjá mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.