Beiðni um endurnýjun sviðsbúnaðar og tækja í Samkomuhúsinu

Málsnúmer 2017050022

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 231. fundur - 11.05.2017

Erindi dagsett 3. maí 2017 frá Þuríði Helgu Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra MAk og Jóni Páli Eyjólfssyni leikhússtjóra LA þar sem óskað er eftir endurnýjun á sviðsbúnaði og tækjum í Samkomuhúsinu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir kr. 20.000.000 úr áhalda- og búnaðarsjóði umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar til að endurnýja sviðsbúnað og tæki í Samkomuhúsinu.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 11. fundur - 19.05.2017

Lögð fram beiðni frá stjórn Akureyrarstofu um fjármagn til endurnýjunar sviðsbúnaðar og tækja fyrir Samkomuhúsið að upphæð 20 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup að upphæð 10 milljónir króna.

Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.