Fækkun leikskólarýma

Málsnúmer 2017040055

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 7. fundur - 24.04.2017

Erindi barst símleiðis í viðtalstíma bæjarfulltrúa þann 6. apríl sl. frá Jóhanni Gunnarssyni þar sem hann gerði athugasemd við að verið sé að fækka leikskólarýmum þegar það vantar í raun pláss fyrir börn í leikskóla.

Þegar leikskólaplássum var fækkað var gert ráð fyrir að hægt yrði að innrita sama aldurshóp og frá árinu áður. Óvænt fjölgun leikskólabarna á Akureyri síðustu mánuði hefur haft áhrif á þá stöðu (sjá lið. 3).