Kraftlyftingafélag Akureyrar (KFA) - ósk um leiðréttingu á rekstrarstyrk 2016

Málsnúmer 2017040052

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 7. fundur - 27.04.2017

Erindi tölvupóstsent 6. apríl 2017 frá framkvæmdastjóra Kraftlyftingafélags Akureyrar þar sem félagið óskar eftir leiðréttingu á rekstrarstyrk fyrir árið 2016 vegna aðstöðu félagsins í Sunnuhlíð. Erindið barst einnig frístundaráði í gegnum viðtalstíma bæjarfulltrúa frá bæjarráði sem vísaði málinu áfram á fundi sínum 19. apríl 2017.
Frístundaráð getur ekki orðið við þessari beiðni þar sem þetta rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar 2017.