Oddeyrartangi/Sjávargata 4 - umsókn um niðurrif spennistöðvar

Málsnúmer 2017030529

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 625. fundur - 23.03.2017

Erindi dagsett 14. mars 2017 þar sem Gunnar Haukur Gunnarsson fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um heimild til að rífa niður spennistöð nr. 78 sem skráð er á Oddeyrartanga, landnr. 149131, sem með leyfi bæjarstjórnar frá 4. apríl 1992 hafði verið færð inn á núverandi lóð Bústólpa nr. 4 við Sjávargötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð, þ.e. plata og sökklar sem standa upp úr jörð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.