Vinnuskóli 2017 - laun

Málsnúmer 2017030189

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3551. fundur - 06.04.2017

Lögð fram tillaga um laun í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2017.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2017 hækki um 10% og verði sem hér segir:

14 ára kr. 501

15 ára kr. 572

16 ára kr. 751

10,17% orlof er greitt til viðbótar við tímakaup.

Bæjarráð samþykkir einnig að hámarksfjöldi tíma verði sem hér segir:

14 ára 105 tímar

15 ára 180 tímar

16 ára 240 tímar