Tryggvabraut 18-20 - fyrirspurn vegna breyttrar notkunar á 2. hæð

Málsnúmer 2017030163

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 625. fundur - 23.03.2017

Erindi dagsett 16. mars 2017 þar sem Sigurður Einarsson fyrir hönd N1 ehf. leggur inn fyrirspurn vegna breyttrar notkunar á 2. hæð í húsi nr. 18-20 við Tryggvabraut. Fyrirhugað er að breyta hæðinni í skammtíma gistiaðstöðu fyrir starfsmenn. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Einarsson.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í hugmynd um gistiaðstöðu fyrir starfsmenn en tekur að öðru leyti ekki afstöðu til innréttingar rýmisins. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir breytingum.