ÁLFkonur, félagasamtök - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2017

Málsnúmer 2017030005

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 227. fundur - 16.03.2017

Umsókn dagsett 26. febrúar 2017 frá ÁLFkonum þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr.100.000 vegna ljósmyndasýningar í Lystigarðinum til minningar um Björgvin Steindórsson fyrrum forstöðumann garðsins.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 til verkefnisins.