Göngugata - lokun með rafmagnspolla

Málsnúmer 2017020166

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 5. fundur - 03.03.2017

Lagt fyrir minnisblað dagsett 28. febrúar 2017 ásamt kostnaðaráætlun vegna rafmagnspolla til lokunar göngugötu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir upplýsingum um tæknilegar útfærslur og verklagsreglur um aðgengi og opnun göngugötunnar.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 6. fundur - 17.03.2017

Lagt fram minnisblað dagsett 16. mars 2017 vegna aðgengis að göngugötunni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fresta framkvæmdinni og skoða hana í samhengi með öðrum framkvæmdum í tengslum við göngugötuna.