Kristjánshagi 4 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2016120155

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 250. fundur - 11.01.2017

Erindi dagsett 21. desember 2016 þar sem Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um lóð nr. 4 við Kristjánshaga. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið þar sem aðeins barst ein umsókn um lóðina. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 647. fundur - 21.09.2017

Erindi dagsett 14. september 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Tréverks ehf. sækir um framkvæmdafrest á úthlutaðri lóð sinni númer 4 við Kristjánshaga. Byrjun framkvæmda er fyrirhuguð snemma vors 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir framkvæmdafrest til 1. maí 2018.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 675. fundur - 26.04.2018

Erindi dagsett 23. apríl 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um framlengingu á framkvæmdafresti á úthlutaðri lóð sinni númer 4 við Kristjánshaga til 1. júní 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 682. fundur - 25.06.2018

Erindi dagsett 14. júní 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um framlengingu á framkvæmdafresti á úthlutaðri lóð sinni nr. 4 við Kristjánshaga til 15. ágúst 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.