Frumvarp til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (breyting á A-deild sjóðsins), 6. mál

Málsnúmer 2016120099

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3535. fundur - 15.12.2016

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 14. desember 2016 frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (breyting á A-deild sjóðsins), 6. mál 2016.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 15. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0006.html

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að frumvarp til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins verði að lögum og felur bæjarstjóra að senda bókunina til Alþingis.