Strandgata 27 - fyrirspurn

Málsnúmer 2016120095

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 250. fundur - 11.01.2017

Erindi móttekið 9. desember 2016 þar sem Birgir Þ. Jóhannsson fyrir hönd Gömlu húsanna ehf., kt. 510716-1160, leggur inn fyrirspurn um hvort leyfi fáist fyrir viðbyggingu við Strandgötu 27, byggingarár 1879. Meðfylgjandi er afstöðumynd og ljósmyndir.
Þar sem húsið fellur undir aldursákvæði laga um menningarminjar, krefjast allar breytingar samþykkis Minjastofnunar Íslands.

Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið að því fengnu. Umsækjanda er heimilað að gera tillögu að breytingu á deiliskipulagi.