Kjarnagata 53 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2016120058

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 250. fundur - 11.01.2017

Erindi dagsett 8. desember 2016 þar sem Sigurður Sigurðsson fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um lóð nr. 53 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið þar sem aðeins barst ein umsókn um lóðina. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.