Hafnarstræti 98 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016120035

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 613. fundur - 15.12.2016

Erindi dagsett 5. desember 2016 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyri back packers ehf., kt. 450711-1360, sækir um breytingu á húsi nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar teikningar 15. desember 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 615. fundur - 12.01.2017

Erindi dagsett 5. desember 2016 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyri Back Packers ehf. sækir um að breyta áður samþykktum uppdráttum á húsi nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar teikningar 30. desember 2016.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 747. fundur - 14.11.2019

Erindi dagsett 5. desember 2016 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyri Back Packers ehf., kt. 450711-1360, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 98 við Hafnarstræti, sjá mál 2011080075. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar teikningar 29. október 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.