Minnismerki um Kristján Níels Jónsson - Káinn

Málsnúmer 2016110189

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 220. fundur - 01.12.2016

Erindi dagsett 4. nóvember 2016 frá "Káinshópnum" sem undirbýr málþing um skáldið Kristján Níels Jónsson sem fram á að fara á næsta ári. Í undirbúningnum hefur komið upp sú hugmynd að Íslendingafélögin í Norður-Dakóta í samstarfi við ættfræðihópinn "Icelandic Roots" gefi Akureyringum minnismerki um Káinn. Í erindinu er óskað staðfestingar á því að Akureyrarbær vilji þiggja þessa gjöf.
Stjórn Akureyrarstofu tekur fyrir sitt leyti jákvætt í að Akureyringar þiggi þessa gjöf. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við þá aðila hjá Akureyrarbæ sem koma þurfa að því.