Hafnargata, Hrísey - umsókn um niðurrif

Málsnúmer 2016110153

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 611. fundur - 01.12.2016

Erindi dagsett 22. nóvember 2016 þar sem Gestur Guðjónsson fyrir hönd Olíudreifingar ehf., kt. 660695-2069, sækir um að rífa hús/skúr á lóð 152128 við Hafnargötu í Hrísey.
Skipulagsstjóri samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð, þ.e. plata og sökklar sem standa upp úr jörð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.