AfreksþjálfunGS - óskað eftir úthlutun á æfingatímum haust/vetur 2016-2017

Málsnúmer 2016090191

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 197. fundur - 06.10.2016

Erindi dagsett 30. ágúst frá Gísla Sigurðssyni þar sem óskað er eftir tímum í íþróttahúsum Akureyrarbæjar vegna AfreksþjálfunarGS. Meðfylgjandi er umsögn stjórnar ÍBA til erindisins.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

Íþróttabandalag Akureyrar sér um tímaúthlutun í íþróttamannvirkjum til aðildarfélaga sinna. Sú tímaúthlutun nær einnig til afreksþjálfunar innan íþróttafélaga.

Tímaleiga í íþróttamannvirkjum til annarra en aðildarfélaga ÍBA er skv. gjaldskrá bæjarins.