Heiðartún 2-12 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2016090006

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 601. fundur - 15.09.2016

Erindi dagsett 1. september 2016 þar sem Björn Ómar Sigurðarson fyrir hönd T21, kt. 430615-1060, sækir um lóð nr. 2-12 við Heiðartún. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.
Skipulagsstjóri samþykkir að veita umsækjanda lóðina í samræmi við vinnureglur um lóðarveitingar, en vísar ósk um deiliskipulagsbreytingu til skipulagsnefndar. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Skipulagsnefnd - 242. fundur - 28.09.2016

Erindi dagsett 1. september 2016 þar sem Björn Ómar Sigurðarson fyrir hönd T21 ehf., kt. 430615-1060, sótti um lóð nr. 2-12 við Heiðartún.

Skipulagsstjóri úthlutaði umsækjanda lóðinni á afgreiðslufundi þann 15. september síðastliðinn. Samhliða óskaði umsækjandi eftir að gera deiliskipulagsbreytingu á lóðinni og byggja þar tvö átta íbúða hús.
Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 1. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.