Hamragerði 13 - umsókn um stækkun lóðar

Málsnúmer 2016080108

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 241. fundur - 14.09.2016

Erindi dagsett 26. ágúst 2016 þar sem Bergljót Pálsdóttir sækir um stækkun á lóð nr. 13 við Hamragerði.
Skipulagsnefnd frestar erindinu og óskar eftir rökstuðningi fyrir umókninni.

Skipulagsnefnd - 242. fundur - 28.09.2016

Erindi dagsett 26. ágúst 2016 þar sem Bergljót Pálsdóttir sækir um stækkun á lóð nr. 13 við Hamragerði. Skipulagsnefnd frestaði erindinu á fundi 14. september 2016 og óskaði eftir rökstuðningi.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið samkvæmt 1. málsgrein 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Tryggvi Gunnarsson S-lista greiddi atkvæði á móti.

Skipulagsnefnd - 249. fundur - 14.12.2016

Erindi dagsett 26. ágúst 2016 þar sem Bergljót Pálsdóttir sækir um stækkun á lóð nr. 13 við Hamrgerði. Skipulagsnefnd heimilaði að erindið yrði grenndarkynnt á fundi 28. september 2016. Erindið var grenndarkynnt frá 13. október með athugasemdafresti til 9. nóvember 2016.

Engin athugasemd barst.
Meirihluti skipulagsnefndar samþykkir að veita tímabundinn afnotarétt af umbeðnu svæði vestan lóðarinnar Hamragerðis 13 til 5 ára sem framlengist um eitt ár í senn með 6 mánaða uppsagnarfresti. Afnotarétturinn er veittur með því skilyrði að þar verði ekki reist mannvirki eða þar lagt og geymd farartæki. Lóðarskrárritara er falið að gefa út lóðarsamning með ofangreindum skilyrðum.