Skaðabótakrafa vegna deiliskipulags og framkvæmda við Hafnarstræti 88

Málsnúmer 2016070021

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 276. fundur - 25.10.2017

Erindi dagsett 23. ágúst 2017 þar sem Andrés Már Magnússon hdl., f.h. eigenda í Hafnarstræti 88, óskar eftir því að Akureyrarbær taki afstöðu til þess hvort hann telji sig skaðabótaskildan gagnvart eigendum vegna deiliskipulags á Drottningarbrautarreit.
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista bar upp vanhæfi sitt og var það samþykkt. Vék hann af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Skipulagsráð leggur til að bótakröfunni verði hafnað. Deiliskipulag svæðisins frá 1981, breytt 2004, var í gildi þar til núgildandi deiliskipulag tók yfir árið 2012 (Deiliskipulag Miðbæjar - Drottningarbrautarreitur). Það deiliskipulag gerði ráð fyrir mun meiri útsýnisskerðingu húsa við Hafnarstræti en núgildandi deiliskipulag.

Bæjarráð - 3575. fundur - 09.11.2017

Lagður fram til kynningar 21. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 25. október 2017:

Erindi dagsett 23. ágúst 2017 þar sem Andrés Már Magnússon hdl., f.h. eigenda í Hafnarstræti 88, óskar eftir því að Akureyrarbær taki afstöðu til þess hvort hann telji sig skaðabótaskildan gagnvart eigendum vegna deiliskipulags á Drottningarbrautarreit.

Tryggvi Már Ingvarsson B-lista bar upp vanhæfi sitt og var það samþykkt. Vék hann af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Skipulagsráð leggur til að bótakröfunni verði hafnað. Deiliskipulag svæðisins frá 1981, breytt 2004, var í gildi þar til núgildandi deiliskipulag tók yfir árið 2012 (Deiliskipulag Miðbæjar - Drottningarbrautarreitur). Það deiliskipulag gerði ráð fyrir mun meiri útsýnisskerðingu húsa við Hafnarstræti en núgildandi deiliskipulag.



Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð - 3680. fundur - 22.04.2020

Kynnt matsgerð vegna skaðabótakröfu.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að afla frekari gagna vegna málsins í samræmi við umræður á fundinum.

Bæjarráð - 3684. fundur - 20.05.2020

Kynnt matsgerð vegna skaðabótakröfu.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar bótakröfu á grundvelli fyrirliggjandi mats og felur bæjarlögmanni að svara bréfritara.