Oddeyrartangi - Tangabryggja - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016070017

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 592. fundur - 07.07.2016

Erindi dagsett 22. júní 2016 þar sem Þór A. Gunnarsson f.h. Skeljungs hf., kt. 590269-1749, sækir um leyfi til að staðsetja lausa eldsneytisafgreiðslu á Tangarbryggju, samanber meðfylgjandi teikningar. Framkæmdin hefur fengið samþykki Hafnarsamlags Norðurlands.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 631. fundur - 18.05.2017

Erindi dagsett 22. júní 2016 þar sem Þór A. Gunnarsson fyrir hönd Skeljungs hf. sækir um leyfi til að staðsetja lausa eldsneytisafgreiðslu á Tangabryggju, samanber meðfylgjandi teikningar. Framkæmdin hefur fengið samþykki Hafnasamlags Norðurlands. Innkomnar nýjar teikningar 10. maí 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Endanleg staðsetning verði í samráði við hafnarstjóra.