Hofsbót 3 og 5 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2016060142

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 237. fundur - 29.06.2016

Erindi dagsett 23. júní 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Vars þróunarfélags ehf., kennitala 610515-0370, sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðir númer 3 og 5 við Hofsbót. Meðfylgjandi eru gögn.
Skipulagsnefnd frestar erindinu.

Skipulagsnefnd - 241. fundur - 14.09.2016

Erindi dagsett 23. júní 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Vars þróunarfélags ehf., kt. 610515-0370, sækir um vilyrði fyrir lóðinni og leggur fram hugmynd að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina. Skipulagsnefnd frestaði erindinu á fundi 29. júní 2016.
Skipulagsnefnd getur ekki orðið við beiðni um vilyrði fyrir lóðinni þar sem lóðir á svæðinu munu verða auglýstar með hefðbundnum hætti í samræmi við vinnureglur um lóðarveitingar þegar ákvörðun hefur verið tekin um uppbyggingu svæðisins og hafnar því erindinu.