Námsstyrkjasjóður embættismanna - 2016

Málsnúmer 2016050119

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 1. fundur - 13.05.2016

Farið yfir núverandi stöðu Námsstyrkjasjóðs embættismanna.

Lagt til að auglýst verði að nýju eftir umsóknum fyrir námsárið 2016-2017.
Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna fyrir námsárið 2016-2017 og að umsóknarfrestur verði til og með 27. maí 2016.

Fræðslunefnd - 2. fundur - 06.06.2016

Yfirferð umsókna í Námsstyrkjasjóð embættismanna.

Umsókn barst frá Ingu Þöll Þórgnýsdóttur bæjarlögmanni. Hún sækir um styrk til töku námsleyfis í níu mánuði sem hún óskar eftir að taka frá og með 1. október 2016. Inga þöll hefur áður fengið námsleyfi í þrjá mánuði frá 1. október 2006 til og með 2. janúar 2007. Inga Þöll hefur starfað hjá Akureyrarbæ frá árinu 2002. Hún hefur í hyggju að

stunda nám í opinberri stjórnsýslu eða öðru meistaranámi. Samþykki bæjarstjóra liggur fyrir.
Fræðslunefnd samþykkir að veita Ingu Þöll Þórgnýsdóttur bæjarlögmanni námsstyrk til níu mánaða námsleyfis frá 1. október 2016.