Vallargata 9, Grímsey - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2016050072

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 585. fundur - 11.05.2016

Erindi móttekið 9. maí 2016 þar sem Magnús Þór Bjarnason og Anna María Sigvaldadóttir sækja um stöðuleyfi til fimm ára fyrir 15 fermetra bjálkahús/garðskúr á lóða sinni nr. 9 við Vallargötu í Grímsey. Meðfylgjandi er afstöðumynd og útlit.
Framkvæmdin er ekki leyfisskyld skv. g-lið, grein 2.3.5. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.