Stjórnendaálag - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2016050064

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 3. fundur - 06.05.2016

Kynnt erindi dagsett 6. maí 2016 frá Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi varðandi stjórnendaálag í starfi forstöðumanns tæknideildar.
Afgreiðslu frestað.

Kjarasamninganefnd - 4. fundur - 12.09.2016

Tekið fyrir erindi dagsett 6. maí 2016 frá Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi varðandi stjórnendaálag í starfi forstöðumanns tæknideildar sem frestað var á fundi kjarasamninganefndar 6. maí sl.
Kjarasamninganefnd getur ekki orðið við erindinu með vísan til reglna Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.