Hamarstígur 33 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2016050034

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 231. fundur - 11.05.2016

Erindi dagsett 2. maí 2016 þar sem Kollgáta ehf., óskar eftir f.h. lóðarhafa Hamarstígs 33 að stækka byggingarreit fyrir bílskúr. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.