Tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018, 638. mál

Málsnúmer 2016040162

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3504. fundur - 28.04.2016

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 20. apríl 2016 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018, 638. mál.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. apríl 2016 á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/1061.html
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn byggða á bókun bæjarstjórnar á fundi 19. apríl sl.

Bæjarstjórn - 3410. fundur - 07.03.2017

Umræður um niðurskurð á samgönguáætlun Alþingis.
Lögð fram eftirfarandi tillaga að bókun:

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar telur það algjörlega óásættanlegt að nýsamþykkt samgönguáætlun hafi ekki verið fjármögnuð að fullu við gerð fjárlaga 2017. Áætlunin er vanfjármögnuð um 10 milljarða króna á árinu 2017 og því hefur samgönguráðherra lagt til mikinn niðurskurð á þeim verkefnum sem til stóð að framkvæma á árinu.


Þriðji áfangi Dettifossvegar, er meðal þeirra verkefna sem samgönguráðherra leggur til að skorið verði niður og ljóst er að vegurinn mun því ekki klárast á árinu 2018 líkt og stefnt var að. Fjármagn í flughlaðið á Akureyri mætir niðurskurði og er ekki á áætlun.

Þessar framkvæmdir og fleiri sem fyrirhugað er að falla frá eru mikilvæg hagsmunamál fyrir byggðarlög í landinu og eru liður í því að styrkja innviði landsbyggðarinnar og stuðla að möguleikanum fyrir fjölbreytta uppbyggingu um allt land.

Áframhaldandi fjársvelti til samgöngumála getur leitt til hruns í samgöngukerfinu sem mun koma hart niður á umferðaröryggi, ferðaþjónustu, öðrum atvinnugreinum og íbúum landsins.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar skorar á Alþingi, ráðherra og ríkisstjórn að endurskoða þessa ákvörðun og tryggja þegar það fjármagn sem gert er ráð fyrir í samgönguáætlun, þannig að uppbygging þessara samgöngumannvirkja sem og annarra um land allt komi til framkvæmda á árinu samkvæmt áætlun.

Bókunin var borin upp og samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.