Torfunef 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030140

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 225. fundur - 23.03.2016

Erindi dagsett 16. mars 2016 þar sem Skúli Gautason f.h. Ambassador ehf., kt. 551009-2620, sækir um tímabundið byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 1 við Torfunef. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsnefnd getur fallist á að tímabundið verði leyft að setja niður aðstöðuhús á nýja fyllingu við Torfunef, sunnan lóðar fyrirtækisins þangað til byggt hefur verið nýtt hús á lóðinni, þó ekki lengur en til 1. júní 2018.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 585. fundur - 11.05.2016

Erindi dagsett 16. mars 2016 þar sem Skúli Gautason f.h. Ambassador ehf., kt. 551009-2620, sækir um tímabundið byggingarleyfi fyrir húsi við Torfunef. Meðfylgjandi eru myndir. Innkomnar teikningar 11. maí 2016.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir tímabundið byggingarleyfi til 1. júní 2018.