Gránufélagsgata 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030038

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 577. fundur - 10.03.2016

Erindi dagsett 7. mars 2016 þar sem Logi Már Einarsson f.h. RS fasteigna ehf., kt. 701213-0170, sækir um leyfi til að setja að nýju hurð á norðurhlið hússins nr. 4 við Gránufélagsgötu til samræmis við upprunalegt útlit hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.