Hafnarstræti 86, húsfélag - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2016

Málsnúmer 2016020074

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 205. fundur - 10.03.2016

Umsókn dagsett 27. janúar 2016 frá húsfélagi Hafnarstrætis 86 þar sem sótt er um 250.000 kr. styrk úr Húsverndarsjóði Akureyrar vegna Hafnarstrætis 86.

Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála á Akureyrarstofu og Hanna Rósa Sveinsdóttir sérfræðingur frá Minjasafninu á Akureyri sátu fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 250.000 til verkefnisins.