Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri/Þórduna - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2016

Málsnúmer 2016020048

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 206. fundur - 16.03.2016

Umsókn dagsett 26. janúar 2016 frá Leikfélagi Verkmenntaskólans á Akureyri/Þórdunu þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 300.000 vegna uppsetningar leikfélagsins á söngleiknum Bjart með köflum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 til verkefnisins.