ÖA - umsókn um styrk til gæðaverkefna 2015

Málsnúmer 2016010108

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1226. fundur - 16.03.2016

Öldrunarheimili Akureyrarbæjar hlutu styrk frá heilbrigðisráðherra, til gæðaverkefnisins "rafræn lyfjaumsýsla". Bryndís Björg Þórhallsdóttir sem stýrir verkefninu, forstöðumaður Víði- og Furuhlíðar, veitti styrknum viðtöku í velferðarráðuneytinu þann 8. mars sl.

Lögð fram tilkynning um styrkinn dagsett 4. mars 2016 og samkomulag um styrk til gæðaverkefnis dagsett 8. mars 2016 en fjárhæðin kr. 500 þús. er bundin verkefninu og að skila þurfti stuttri greinargerð um ráðstöfun styrksins.
Málinu frestað til næsta fundar.

Velferðarráð - 1227. fundur - 06.04.2016

Frestað frá síðasta fundi. Öldrunarheimili Akureyrarbæjar hlutu styrk frá heilbrigðisráðherra, til gæðaverkefnisins 'rafræn lyfjaumsýsla'. Bryndís Björg Þórhallsdóttir forstöðumaður Víði- og Furuhlíðar, sem stýrir verkefninu, veitti styrknum viðtöku í velferðarráðuneytinu þann 8. mars sl.

Lögð fram tilkynning um styrkinn dagsett 4. mars 2016 og samkomulag um styrk til gæðaverkefnis dagsett 8. mars 2016 en fjárhæðin kr. 500 þúsund er bundin verkefninu og að skila þurfti stuttri greinargerð um ráðstöfun styrksins.