Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2015

Málsnúmer 2015120231

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3502. fundur - 14.04.2016

Lagður fram ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2015.

Hólmgrímur Bjarnason og Aðalsteinn Sigurðsson endurskoðendur frá Deloitte ehf mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og skýrðu ársreikninginn.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið ásamt Njáli Trausta Friðbertssyni bæjarfulltrúa D-lista.
Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 3391. fundur - 19.04.2016

1. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 14. apríl 2016:

Lagður fram ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2015.

Hólmgrímur Bjarnason og Aðalsteinn Sigurðsson endurskoðendur frá Deloitte ehf mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og skýrðu ársreikninginn.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið ásamt Njáli Trausta Friðbertssyni bæjarfulltrúa D-lista.
Fram kom tillaga um að vísa ársreikningnum til bæjarráðs og síðari umræðu í bæjarstjórn og var hún samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Bæjarráð - 3504. fundur - 28.04.2016

4. liður í fundargerð bæjarstjórnar dagsett 19. apríl 2016:

Fram kom tillaga um að vísa ársreikningnum til bæjarráðs og síðari umræðu í bæjarstjórn og var hún samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 3392. fundur - 03.05.2016

1. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 28. apríl 2016:

Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 var borinn upp í heild sinni og samþykktur með 11 samhljóða atkvæðum.

Ársreikningurinn var síðan undirritaður.