Golfklúbbur Akureyrar - ósk um styrk vegna Íslandsmótsins í höggleik á Akureyri 2016

Málsnúmer 2015110149

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 181. fundur - 03.12.2015

Erindi dagsett 18. nóvember 2015 frá Ágústi Jenssyni framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir fjárstyrk til að standa straum af kostnaði við Íslandsmótið í höggleik.
Íþróttaráð fagnar því að Íslandsmótið í höggleik verði haldið á Akureyri sumarið 2016.
Formanni falið að vinna málið áfram að ósk GA um kynningu á erindinu fyrir bæjarráð.

Íþróttaráð - 197. fundur - 06.10.2016

Erindi frá Ágústi Jenssyni framkvæmdastjóra GA þar sem uppgjör Íslandsmótsins á Jaðri í sumar er lagt fram og óskað eftir að styrkumsókn GA vegna Íslandsmótsins til íþróttaráðs verði tekin fyrir aftur.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.



Þórunn Sif Harðardóttir D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.
Guðrún Þórsdóttir vék af fundi kl. 16:25.