Skákfélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna heimsmeistaramóts unglinga í skák

Málsnúmer 2015100089

Vakta málsnúmer

Samfélags- og mannréttindaráð - 173. fundur - 05.11.2015

Lagt fram erindi frá Skákfélagi Akureyri dagsett 8. október 2015 undirritað af Áskeli Erni Kárasyni formanni. Óskað er eftir styrk að upphæð kr. 140.000 vegna þátttöku tveggja keppenda frá Akureyri í heimsmeistaramóti unglinga í skák.
Ráðið samþykkir að veita Skákfélaginu styrk að upphæð kr. 80.000.
Þegar hér var komið yfirgaf Vilberg Helgason V-lista fundinn kl. 15:00.